Letur :
Small Text
Big Text
Breidd :
Normal Frame
Big Frame

Opið mán - fös kl. 8:00 - 17:00.
Lokað laugardaga | Sími:  412 1700
FINNA

FYRIRTÆKIÐ
Um fyrirtækið

Formaco ehf. var stofnað í október 1997 með það að markmiði að þjónusta byggingaiðnaðinn með gæða vöru á hagkvæmu verði. Stofnendur og eigendur eru Ragnar Jóhannsson og Helga Margrét Jóhannsdóttir. Við stofnun fyrirtækisins var starfsígildi 1,5 en eru um 80 í dag.  

11. maí 2004 keypti Formaco ehf.  allan rekstur fyrirtækjanna Idex ehf. Reykjavík og Idex A/S,Danmörku. Markmið Formaco með þessum kaupum var að auka vöruúrval og veita viðskiptavinum enn betri og fjölbreyttari þjónustu. Idex  hefur boðið upp á breitt úrval byggingavara og sérhæft sig í sölu á gluggum og hurðum.

Árið 2007 keypti Formaco fyrirtækið Pólýhúðun ehf. sem sérhæfir sig í dufthúðun málmhluta. Þann 30. apríl 2008 var formleg opnuð ný álgluggaverksmiðja í eigu Formaco á gamla varnarliðssvæðinu á Keflavíkurvelli sem mun framleiða álglugga undir vöruheitinu Idex.

Við undirritun kaupsamnings á Idex ehf.  á Grand Hótel
11. maí 2004.
Við borðið sitja;
Jón Kristjánsson,
Valgarð Kristjánsson,
Árni Tómasson,  
RagnarJóhannsson og
Helga Margrét Jóhannsdóttir. 



Formaco ehf. | Fossaleynir 8 | 112 Reykjavík, Ísland | S: 412-1700 | Fax: 412-1799