Letur :
Small Text
Big Text
Breidd :
Normal Frame
Big Frame

Opið mán - fös kl. 8:00 - 17:00.
Lokað laugardaga | Sími:  412 1700
FINNA

FLEKA OG FELLIVEGGIR
Fleka- og felliveggir:

Fleka- og felliveggir frá Formaco eru framleiddir af sænskum og þýskum framleiðendum undir vörumerkinu habila.

Fleka- og felliveggir eru færanlegar veggeiningar til skiptingar á stóru eða smáu rými aðallega ætlað fyrir skóla, hótel, ráðstefnu- eða fundarsali.

Hljóðeinangrun felliveggja frá Rw. 41 – 49 decibil og flekaveggja Rw 40 – 58 decibil.  

Flekaveggir eru frekar ætlaðir til skiptinga á stóru rými þar sem hver fleki er sjálfstæður og hengdur á sleða í öflugri braut. Hægt er að flytja einingarnar úr einum stað í annan og raða saman á mismunandi vegu svo sem til geymslu þegar opna þarf á milli rýma. 

Felliveggir eru frekar ætlaðir til skiptinga á minna rými þar sem einingarnar í veggnum eru samhangandi. Allar einingarnar eru þannig samhangandi og keyra eftir braut í lofti og/eða gólfi. Við opnun raðast einingarnar til hliðar eins og harmonika.

 

Sjá nánari upplýsingar og myndir á heimasíðu Winab.




Formaco ehf. | Fossaleynir 8 | 112 Reykjavík, Ísland | S: 412-1700 | Fax: 412-1799