Letur :
Small Text
Big Text
Breidd :
Normal Frame
Big Frame

GLUGGAR OG HURÐIR

Það hefur verið stefna fyrirtækisins frá upphafi að vera með vörur í háum gæðaflokki á hagstæðu verði fyrir okkar viðskiptavini. Við höfum reynt að velja það besta frá nokkrum framleiðendum til að þjóna kröfum sem flestra.

Ál / tré gluggar og hurðir frá Velfac.
Velfac gluggarnir hafa sérstöðu í hönnun þar sem ál og timburhlutinn er algerlega aðskilinn. Glerjað er í álhlutann, þannig að allt sem vatn, sólskin og aðrir skaðlegir umhverfisþættir mæða á er úr áli, en inn snýr hlýlegur viðurinn. Viðurinn í Velfac gluggunum er sérstaklega valin norður skandinavísk fura. Eingöngu er notaður kjarnaviður til að trygga langa endingu án fúa. Velfac gluggarnir mega því teljast næstum viðhaldsfríir. Eina viðhaldið sem þörf er á er að þvo þá, smyrja lamir og lokunarbúnað. Meira um Velfac      

Harðviðargluggar og hurðir frá Vrögum og Bent Jensen.
Við bjóðum glugga og hurðir bæði úr eik og Mahogny sem hiklaust er góður kostur fyrir þá sem vilja vandaða glugga/hurðir með langa endingu og fallegt útlit. Þessa glugga þarf samt sem áður að annast með umhyggju eigi að þeir haldist fallegir um langan aldur.

Furugluggar og hurðir frá Rationel.
Velfac ásamt Rationel mynda stærsta gluggaframleiðanda á norðurlöndum.
Rationel framleiðir glugga úr sérvalinni samlímdri furu. Þeir bjóða upp á þrjár megin gerðir af gluggum. Tvær þeirra eru eingöngu úr furu og helsti mismunur á þeim er mismunandi gerð prófíla. Þriðja gerðin er á hinn bóginn álklæddur furugluggi, þ.e að utan á furuna er sett álkápa til hlífðar gegn sól regni og öðrum skaðvöldum.

Idex álgluggar.
Í ársbyrjun hóf Formaco framleiðslu á eigin álgluggum undir vörumerkinu Idex. Verksmiðjan er staðsett á Keflavíkurvelli en söludeild er staðsett í höfuðstöðvum Formaco. Með eigin framleiðslu á álgluggum er Formaco að koma til móts við auknar þarfir markaðarins um notkun á álgluggum með því að auka þjónustuna og stytta afgreiðslutíma.




Formaco ehf. | Fossaleynir 8 | 112 Reykjavík, Ísland | S: 412-1700 | Fax: 412-1799